Jæja er komin tími til að blogga eða hvað, ég ekki búin að vera
neitt að nenna þessu í sumar. En síðan síðast er mikið búið að
gerast hjá mér. En ég vill byrja á því að óska Magnúsi Darra bróðir
til hamingju með afmælið á þriðjudaginn síðasta. Guð minn góður
hann er orðin 15 ára gamall og er að fara í framhaldsskóla á næsta
ári, hvað er ég eiginlega orðin gömul ???
Við fórum til Calpe á Spáni þann 26. júní með tengdó, Gunnari,
ömmu hans Jóhannesar, og tveimur frænkum hans. Það var rosalega
gaman, mjög heitt en mjög skemmtilegt. Þegar við komum heim frá
Spáni var Sif systir komin til landsins og var æðislegt að sjá
hana. Jóhannes fór beint á Ísafjörð bara daginn eftir að við komum
heim. Það var algjört æði að hafa Sif hjá sér í sumar.
Telma fór svo vestur til mömmu og pabba, hún var þar í tvær
vikur. Því að leikskólinn lokaði 17. júlí en ég fór ekki í frí fyrr
en 1. ágúst. Hún naut þess sko að vera í sveitsælunni hjá mömmu og
þeim enda dekrað svoleiðis við hana.
Ég og Sif nutum þess að vera bara tvær heima á meðan og höfðum
frænkukvöld, fórum kvöldrölt á laugarveginn, og hengum saman alla
daga ekkert smá næs.
Við skelltum okkur svo á Sandaragleðina, Jóhannes kom líka. Það
var tekið rosalega vel á móti okkur eins og alltaf með humarsúpu að
hætti pabba. Svo á laugardeginum þá fórum við í röstina, því þarf
var markaður. VIð kíktum svo aðeins á ömmu og afa. Og svo um
kvöldið þá var partý aldarinnar í bílskúrnum hjá mömmu og þeim. Þar
komu allir saman í götunni og grilluðu saman. Síðan var skellt sér
á ball og allir dönsuðu af sér skóna. Daginn eftir þá vorum við
bara í rólegheitum í sólinn og fórum seint af stað suður.
En svo fór ég vestur á Ísafjörð 1. ágúst og var þar allann
ágúst, það var nú pínu skrítið að vera ekki heima hjá sér neitt í
sumarfríinu en það var alveg geggjað vera loksins saman öll á ný.
En við gerðum alveg helling á Ísafirði, Sif, mamma, pabbi, Magnús
og Gils komu til okkar, þau fóru í Kajak með Jóhannesi, við fórum
út að borða, fórum að veiða og rúntuðum alveg heilan helling með
þeim. Svo komu líka Ragnheiður og Bessi til okkar, við fórum líka
að veiða með þeim, skoðuðum helling. Svo komu Gerður og Oliver Nói,
við fórum með þeim á mýrarboltann sem var heljarinnar fjör að sjá,
við skoðuðum helling með þeim líka.
Annars var voða fínt á Ísafirði, Jóhannes var auðvitað alltaf að
vinna þannig að við nutum þess bara að vera saman á daginn ég og
Telma, við fórum út að labba mikið og á róla. Við gerðum svo
eitthvað skemmtilegt þegar Jóhannes kom heim á daginn. Við vorum
dugleg að fara á Suðureyri í útisundlaugina sem er þar, einnig
fórum við í fjöruferð, og fórum uppá Bola stóra fjallið hjá
Bolungarvík, við fórum auðvitað að veiða, og svo fórum við inní
skálavík. Okkur var svo boðið í matarboð til Þorsteins yfirlæknis á
Ísafirði og fjölskyldu hans. Þar voru allir læknarnir, makar og
börn saman komin og áttum við frábært kvöld með þeim. Við komum svo
heim 25. ágúst, keyrðum heim eftir vinnu hjá Jóhannesi og það var
rosalega gott að koma heim. Þegar við komum heim þá var Sif hjá
okkur, mamma og pabbi. Það var æðislegt að sjá þau öll.
26. ágúst fór svo Sif til Köben, og það var rosalega leiðinlegt
að þurfa að kveðja hana svona snemma eftir að við komum heim . En
svo skelltum við okkur til Köben á mánudeginun þann 28. ágúst. Við
fórum öll 3 og það var alveg geggjað. Við vorum voða heppin með
veður. Það var verslað þó nokkuð, og farið í dýragarðinn og
Bonbonland, Telmu fannst alveg geggjað að koma til Sifjar og
loksins fengum við að sjá hana Fóu, sem er svo mikil dúlla. Telma
gat ekki litið af henni, hún var allann tímann Fóa mín elsku Fóa
mín heheh. Enda er hún alltaf núna heima mamma hvernær förum við
aftur til Sifjar og Fóu, myndi sko vilja búa þar. Við vorum hjá
henni í 6. daga og komum heim sunnudaginn 3. sept. Svo á
mánudeginum tók við skóli. vinna og leikskóli hjá okkur öllum. Við
þökkum Sif bestu frænku fyrir frábæran tíma saman.
En þið sem að ekki vitið þá eigum við von á öðru barni, Telma er
að verða stóra systir. En ég er sett 6.des og getum við ekki beðið.
Það hefur allt gengið rosalega vel nema að mér var pínu flögurt
fyrstu mánuðina. En núna gengur þetta eins og í sögu.
Það er búið að vera pínu erfitt að koma sér í vinnugírinn eftir
sumarfríið, en þetta er nú allt að koma hjá okkur. En ég er að fara
í endajaxlatöku á föstudaginn næsta og er að deyja yfir því enda
búið að hræða mig verulega mikið. En ég vona að þetta takist nú
vel. En það er voða gott að vera komin heim öll saman og komin
aftur í rútinuna.
Jæja ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili.
Enda orðið ágætis lengd á einu bloggi
kveðja Lea bumba